Tveir nemendur úr Tónskólanum Do Re Mi leika á svæðistónleikum Nótunnar 2022 fyrir hönd skólans sunnudaginn 20. mars kl. 13:00 í Salnum í Kópavogi.
Þetta eru þau Breki Halldórsson Bachmann sem leikur á harmóniku og Ólöf Anna Bergsdóttir sem leikur á þverflautu. Breki leikur lagið Dalarnas Blåklocka eftir Lennart Wärnell. ólöf Anna leikur Berceuse eftir Franz Doppler. Með henni leikur Aladár Rácz á píanó. Tónleikarnir verða á sunnudaginn 20. mars kl. 13:00 í Salnum í Kópavogi.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Nýlegar athugasemdir